09janúar

húllumhæ

Jæja góðir félagar og vandamenn.
Við vorum að spá að hafa smá teiti á föstudaginn 11 jan.
Staðurinn myndi verða þá íbúð 2C blokk 1232. (Samúel&Sveinn) -ekki par
Værum að spá að hafa þetta þá um svona 9 leitið og allir gætu komið með sitt eigið. Gaman væri að sjá sem flesta hjá okkur og þiggja skemmtilegan félagsskap og gætum hleigið og dansað og sagt sögur (svona næstum)

Kær kveðja
Samúel
09. janúar 2008 klukkan 15:15
Aðall 2006
11 athugasemdir
24nóvember

Jæja góðan daginn

Já sæl og góðan daginn,

Ég vildi nú bara tékka hverjir væru að kíkja á síðunna okkar og gá hvar allir væru staddir í lífinu :D

Endilega látið í ykkur heyra...svo kannski getum við mixað einhvern hitting á næstunni væri gaman (allir fara að metast það er klikkað gaman, nei ok kannski ekki)

Kær kveðja
Samúel
24. nóvember 2007 klukkan 04:55
Aðall 2006
24 athugasemdir
04apríl

Gleðilega Páska!

Gleðilega páska öll sömul og hafið það sem allra best um páskana!
                         Páskakveðja Thelma Dögg
04. apríl 2007 klukkan 11:16
Aðall 2006
4 athugasemdir
06mars

Jæja Gott Fólk...

Mig langaði nú bara aðeins til að blogga og ath hver staðan hjá ykkur væri. Finnst nú frekar leiðinlegt ef þetta er algjörlega að fjara út hjá okkurÖskrandi En hvað er svona að frétta af ykkur og hvenær eigum við að hafa næsta hitting..?Svalur 

P.S. Eigum við líka ekki eftir að rukka e-n pening inn??

Allavega, það verður gaman að heyra frá ykkur, þ.e.a.s. ef e-r kíkir enn inná síðunaGlottandi

Kveðja Inibjörg Tengó..

06. mars 2007 klukkan 20:36
Aðall 2006
6 athugasemdir
16febrúar

Evrovision party

Evrovision party á H.inn á morgun 17 feb, Aðallinn velkominn, fríir bjór og bolla, mæting kl 8
16. febrúar 2007 klukkan 20:48
Aðall 2006
3 athugasemdir
07febrúar

lost and found

Sæl aftur
Takk kærlega fyrir mig um helgina, vona að þið höfðuð gamann af þessu, en einhver virðist hafa týnt eyrnalokk heimahjá mér, fannst í sófanum... ef þið eruð að leita. Adam þetta er ekki þinn, búinn að tékka

Kv Samúel

07. febrúar 2007 klukkan 01:23
Aðall 2006
2 athugasemdir
27janúar

Partý, létta upp á síðuna ef einhver er enn að kíkja?

Heil og sæl öllsömul. Ég var að spá hvort við getum ekki ákveðið eitthvað partý, og horft þar af leiðandi á myndirnar og fengið okkur eitthvað að drekka. Ég er ekki beint búinn að vinna í þessu öllu saman en ég verð búinn fyrir tímann sem þarf :). Pabbi klikkaði soldið á þessu þannig að afritin ykkar koma í endan á febrúar. Ég er samt með hina skemmtilegustu myndasýningu.
En ég var að spá föstudag eða laugardag í næstu viku...2/2 eða 3/2 minnir mig. Endilega commentið ef þið hafið áhuga og getið mætt, og ef einhver er tilbúinn að bjóða húsnæði ;)
Væri bústaður ekki fínn?

Kv Samúel
27. janúar 2007 klukkan 11:07
Aðall 2006
20 athugasemdir
15janúar

Velkomin heim

Sæl verið þið öllsömul og takk kærlega fyrir ferðina. Ég ætla að taka það að mér að safna saman öllum myndunum hjá öllum sem með myndavélar voru. Setja það svo saman á disk eða eitthvað meðfærilegt svo allir eiga sömumyndirnar, einnig læt ég video og svona. En ef þið getið sett myndinar ykkar á disk væri það geggjað, en ég get líka alveg fengið bara kubbanna ykkar og gert það sjalfur. Þeir sem ég man að voru pottþett með myndavélar eru: THELMA, Gummi, Adam, Heiða, Ingibjörg, Kristjana, Stefán og svo ég. Ef þið munið eftir einhverjum fleirrum þá endilega´látið mig vita. Svo höldum við eitthvað video/myndakvöld...er það ekki :).
15. janúar 2007 klukkan 03:53
Aðall 2006
8 athugasemdir
27desember

Sólahringur í Tene !!

Jæja krakkar loksins, sólahringur í bjór og bikiní ;)  Af því tilefni er ég komin með nettan stresshnút í magann.  En hvernig er þetta með þennan 8.000 kall sem að við fáum frá sparisjóðnum ? Þurfum við að fara með farseðlana okkar þangað í dag til að fá þessa peninga ?  

Annars takk fyrir gærkvöldið krakkar og sjáumst hress og kát í súpu að sólahringi liðnum ;)

Miss Mary
27. desember 2006 klukkan 18:09
Aðall 2006
5 athugasemdir
25desember

Gleðileg Jól allir saman

Gleðileg Jól öll sömul Brosandi
Jæja nú fer að styttast í ferðina og allir voða spenntir, vona ég.
Annars mega þeir bara vera heima sem vilja ekki fara. Þögull sem gröfin
En var að spá, ég spái mikið, hvernig þið viljið hafa þetta...eigum við að hittast á vellinum...hittast eitthvað áður endilega komið með hugmyndir.
25. desember 2006 klukkan 23:59
Aðall 2006
7 athugasemdir

Leit

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Tenerife!

Innskráningar kubbur